Klukkan

Könnun

Ert žś af Arnardalsętt?

Lķšur aš opnun

01. jślķ 2008 klukkan 22:52
Hér í dalnum er allt á fullu við að reka síðustu smiðshöggin áður en við getum opnað Fjósið fyrir gesti. Það er verið að bæta við klósettum og setja upp brunavarnakerfi og fleira í þeim dúr. Þetta á allt að vera tilbúið um næstu helgi svo viðeigandi aðilar geti tekið staðinn út og við fengið veitinga- og skemmtanaleyfi. Við ætluðum svo sem að vera komin lengra en þar sem við höfum nú ekki gert þetta áður þá áttuðum við okkur ekki alveg á umfanginu og að þetta gerðist ekki á einni nóttu, ágætis lexía í æðruleysi það.
Ættarmót Arnardalsættar verður hér dagana 11.-13.júlí og því óhætt að segja að það verði byrjað með pompi og prakt. Dagskráin kemur hér inn á næstu dögum - fylgist með.

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Feršažjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabęr, Arnardal, Skutulsfirši
  • Annaš: Bókanir og frekari upplżsingar ķ sima 860-6062. erum ķ tķu mķnśtna fjarlęgš frį Ķsafirši.