Dagskrá ættarmóts Arnardalsættar 2008
Föstudagur 11.júlí
19:00 Súpukvöld
Fiskisúpa og brauð í fjósinu
21:00 Kvöldvaka
Vökustjóri Úlfar Ágústsson. Harmonikkusjénið Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir spilar fyrir gesti.
Laugardagur 12.júlí
10:00 Gönguferð á Arnarnes með Úlfari Ágússyni framkvæmdafrömuði og ferðaþjónustubónda í Arnardal. Mæting við fjósið í Heimabæ.
11:00 Gengið á Erni með Oddi Jónssyni mælingamanni og fjallagarpi.
Fyrir þá allra huguðustu! Mæting við fjósið á Heimabæ.
13:00 Gönguferð með Eyvindi P. Eiríkssyni Vestfjarðagoða og húseiganda í Arnardal. Mæting við fjósið á Heimabæ.
15:00 Ratleikur
Skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna. Mæting við fjósið.
16:30 Allir í sund
Hópferð á eigin bílum í sundlaugina í Bolungavík.
20:00 Muurikka-grillveisla í Fjósinu í Arnardal
Húsfreyjan í Arnardal töfrar fram dýrindis veislu á Muurikka pönnum.
21:30 Kvöldvaka
Veislustjóri Halldór Hermannsson. Sverrir Hermannsson segir sögur af Arnardalsætt. Karaókí undir stjórn Mugga hafnastjóra. Dansað með Evu Friðþjófsdóttur danskennara. Benni Sig hinn eiturhressi spilar og syngur.
Sunnudagur 13.júlí
11:00 Helgistund í fjöruborðinu
Séra Magnús Erlingsson messar.
11:30 Gönguferð í Arnardalsfjöru með Sigurði Péturssyni sagnfræðingi. Farið eftir helgistund úr fjörunni.
13:00 Málþing í fjósinu
Skrafað og skeggrætt um Arnardalsætt. Mótsslit.
