Dalaportið og kökuhlaðborð á laugardaginn
15. júlí 2008 klukkan 22:43
Laugardaginn 19.júlí ætlum við að vera með DALAPORTIÐ í Hlöðunni í Arnardal. Nafnið er tilvísun í Kolaportið og verður mikið og margt að sjá og fá. Þetta verður ein alsherjar bílskúrssala og hvet ég alla sem þurfa að bæta við sig einhverju í búið eða á sig fataplöggum að kíkja við. Vel hefur gengið að koma út borðum til áhugasamra varningssala en það eru enn laus 2-3 stæði sem hægt er að frátaka í síma 860-6062. Dalaportið stendur yfir frá klukkan 13-17.
Sama dag frá 14-16:30 verður KÖKUHLAÐBORÐ í Fjósinu en þar verður hægt að fá sér ýmislegt gúmmilaði eins og brauðtertu, dísudraum, brownies, pönnsur, súkkulaðiköku, flatkökur, marenstertu,kleinur,eplaköku og skálartertu. Verð per mann er 1200.- Börn 6-12 ára borga hálft gjald og frítt fyrir yngri.
ALLIR VELKOMNIR