Gleðilegt nýtt ár
Nýju ári fylgja oft fögur fyrirheit og í tilfelli húsfrúarinnar í Arnardal mun eitt þeirra vera að halda heiminum upplýstum um gang mála í dalnum gegnum þessa ágætu heimsíðu. En eins og glöggir lesendur geta séð var það verkfæri klárlega vannýtt á síðasta ári. Það þýðir þó ekki að við hefðum ekki í nægu að snúast. Mikið var um veisluhöld í Fjósinu sem var nýtt til ýmissa uppákoma eins og starfsmannafagnaða, afmæla, tónleika og svo auðvitað fyrir Dalaportið og kökuhlaðborð sem óhætt er að segja að hafi slegið í gegn.
Næsta Dalaport er á döfunni sunnudaginn 8. febrúar og hvet ég alla sem hafa varning sem þeir vilja koma á framfæri að bóka sér bás annað hvort á arnardalur@arnardalur.is eða í síma 860-6062. Sama á við ef þið viljið bóka veislur.
Hlakka til að hitta ykkur á þessu spennandi ári nýrra og öðruvísi tækifæra.
Annska
