Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Skíðavika að bresta á

06. apríl 2009 klukkan 12:43
Ég vil byrja á að þakka öllum sem komu við á Dalaporti og kaffihlaðborði í gær og ekki síður hetjunum sölufólkinu, það var assgoti kalt í hlöðunni í gær, við erum að skoða úrlausnir á þeim málum fyrir næsta vetur.  

Það styttist óðum í Skíðavikuna og rokkið og heimafólk í óða önn að gera og græja áður en gestirnir taka að streyma í bæinn. Það er að sjálfsögðu þannig líka farið með okkur arndælingana. Það er um það bil að seljast upp á djassinn og hlökkum við mikið til að fá þessa heiðursmenn til að spila hjá okkur. Skiðavikugestir horfinna ára muna margir eftir djasskvöldum með Villa Valla, Óla Kristjáns og Magnúsi Reyni og eru vafalítið margir gesta okkar úr þeim hópi. Okkur fannst ekkert eins við hæfi á þessari rómuðu bæjarhátíð eins og að vekja upp þennan góða dagskrárlið.

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.