Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Kaffihlaðborð og kvartett mæðgnanna á páskadag

08. apríl 2009 klukkan 11:47
Syngjandi mæðgurnar þær Margrét Geirs, Helga Margrét, Anna og Agnes munu fylla eyru gesta tónum á kaffihlaðborði í Arnardal á páskadag. Ísafjörður hefur löngum verið þekktur sem "tónlistarbærinn" og bera þessar glæsilegu mæðgur honum fagurt vitni.

Húsfreyjan sér svo um að fylla magana á kaffihlaðborðinu sem er rómað fyrir hnossgætið sem þar er að finna. Opið verður frá kl. 14-17. Mæðgurnar myndarlegu syngja prógram sitt bæði kl. 15 og kl. 16. Allt á kreppuprís eins og vanalega, en hlaðborðið kostar 1300 kr. börn 6-12 ára borga 1/2 gjald og frítt er fyrir yngri börn.

Verið hjartanlega velkomin í dalinn fagra

hnossgæti í Arnardal

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.