Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Glæsilegir hátíðir að baki

20. apríl 2009 klukkan 09:20

Takk takk allir saman sem litu við hjá okkur á Skíðavikunni. Húsfyllir var hjá okkur á Djassinum og einhverjir þurftu frá að hverfa er kökuhlaðborð og kvartett mæðgnanna var í hámarki upp úr kl. 15 á páskadag, hinir sömu hefðu þó getað snúið til baka klukkustund síðar og fengið nóg að bíta og brenna, sem og tónlistaratriðið vinsæla. Hábíturinn heppnaðist ljómandi vel og munum við klárlega endurtaka þann leik, teljum okkur búin að finna bestu rokkmáltíðina sem enginn ma vera án um komandi rokkhátíðir.

Við erum alsæl með hvernig tókst til á fyrstu starfspáskum okkar hér í dalnum. Við að sjálfsögðu eigum eftir að vera með einhver skemmtilegheit um ókomnar Skíðavikur.

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.