Meira af sólstöðugleðinni
Eins og áður hefur komið fram verður dansað inn í dagbjarta nóttina í Arnardal á laugardagskvöld. Arnardalur er þeim töfrum gæddur að hér skín sólin nánast viðstöðulaust allan sólarhringinn á þessum árstíma og það er sannarlega ærin ástæða til að gleðjast saman yfir þessum langa sólargangi.
Kraftlyftingar-menn, Yxnu-menn og Sökudólgarnir eru kominir í rífandi partýstuð og lofa fjöri fyrir allan peninginn, enda varla annað hægt hjá svona þungavigtarstuðpinnum!
Hvernig fer þetta svo fram?
K. 19 munum við opna Fjósið og þá geta allir keypt sér ljúffenga sumarsúpu húsfreyjunnar, það veður tónlist og þægilegheit þar til við skundum út að brennu kl. 22 þar munu hljómsveitirnar í sameiningu slá á létta strengi og varðeldsstemningin eina sanna íslenska eins og við þekkjum hana best vera við völd, á miðnætti og eigi síðar hefst ballið í Hlöðunni og dönsum við saman til kl. 03:00.
Það er 18 ára aldurstakmark á ballið og athugið að ekki verður hleypt inn á svæðið eftir miðnætti öðrum en þeim sem ætla á ball.
Boðið verður upp á sætaferðir frá plani Stjórnsýsluhússins á Ísafirði kl. 21:30 og 00:00 og svo verður aftur farið í bæinn eftir ball.
Á ballið og skemmtunina kostar 2000 kall. Súpa kostar 1100 kall.
Það er hægt að tjalda í Arnardal viljir þú gera úr sólstöðugleðinni alvöru útihátíð!
