Hver á sér fegra föðurland í Arnardal
Tónlistarmennirnir ferðast um landið með innrás Kraums og Rás 2, eftirfarandi texta og ljósmynd var einmitt hnuplað af heimasíðu Kraums:
Árstíðir hafa gert garðinn frægan undanfarin misseri og er skemmst að minnast þess að lag þeirra, Sunday Morning var valið vinsælasta lag Rásar 2 tvær vikur í röð á dögunum. Sveitina skipa þeir Daníel Auðunsson, Ragnar Ólafsson og Gunnar Már Jakobsson gítarleikarar, Jón Elísson píanóleikari og Hallgrímur Jónas Jensson sellóleikari. Árstíðir þekkjast ekki síst á ómfögrum röddunum í anda gullaldarþjóðlagarokks 8. áratugarins. Þeirra fyrsta plata kom út nú í júní og hefur hlotið góðar viðtökur.
Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð sem forsprakki hljómsveitarinnar Hrauns, sem hefur sent frá sér tvær plötur undanfarin ár. Sveitin er ekki síst þekkt fyrir lögin Ástarsaga úr Fjöllunum, Komdu og Clementine en einnig hefur Svavar undanfarin ár gert víðreist sem trúbador og m.a. farið í tónleikaferðalög til Ástralíu, Þýskalands og víðar. Svavar Knútur gaf í vor út plötuna Kvöldvöku sem hefur hlotið frábæra dóma í fjölmiðlum en hún er einungis seld á tónleikum.
Helgi Valur er þekktur fyrir líflega framkomu sína og fjölbreytilegan stíl, en þessi óviðjafnanlegi spaugfugl hefur farið víða um land undanfarin ár. Helgi Valur gaf fyrir nokkrum árum út plötuna Demise of faith og vinnur nú að nýrri plötu sem heitir Electric Ladyboyland. Hann var valinn Trúbador Rásar 2 árið 2004 og hefur komið víða við síðan.
