Góđa ferđ í Arnardal
27. júlí 2009 klukkan 11:24
Söngfuglarnir sætu Helga Margrét Marzellíusardóttir, Dagný Hermannsdóttir og Svanhildur Garðarsdóttir ásamt alsherjar-sjéníinu Halldóri Smárasyni verða með tónleika í Fjósinu í Arnardal fimmtudagskvöldið 30.júlí.
Stelpurnar hafa sungið oft saman í gegnum tíðina, af ýmsum tilefnum, og ákváðu að skella saman skemmtilegu prógrammi og flauta til veislu. Efnisskráin inniheldur allt frá rútubílasöngvum til klassíkur, með ýmsum viðkomustöðum þar á milli eins og poppi og diskói. Öskubuskurnar halda hver í sína áttina á næstunni og þau Helga Margrét og Halldór á förum til höfuðstaðarins þar sem þau munu bæði hefja nám í Listaháskóla Íslands á haustmánuðum og eru tónleikarnir ein leið til að kveðja á báða bóga....í bili.
Það verður kreppuprís í gangi eða 1000 kall og innifalið í miðaverði eru léttar veitingar.
Allir velkomnir!