Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Dalaport, kaffihlaðborð og lifandi tónlist á sunnudag

05. ágúst 2009 klukkan 11:36
Næsta Dalaport verður í Hlöðunni sunnudaginn 9. ágúst frá 13-16:30. Þar geta þeir sem vilja fengið söluborð endurgjaldslaust og komið með heimagerðan varning, geymsludót eða hvað annað sem er tilbúið að eignast nýja eigendur. Til að bóka söluborð þarf að hafa samband við Önnsku í síma 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is

Kaffihlaðborð húsfreyjunnar verður í Fjósinu sama dag en það hefst kl. 14, þar svigna borðin undan heimalögðum kræsingum. Systkinin Hjödda og Jói Jónsbörn sjá um lifandi tónlistarflutning.

Allir velkomnir - við hlökkum til að sjá ykkur í dalnum fagra!

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.