1001 nótt í Arnardal
22. ágúst 2009 klukkan 10:33
Fimmtudagskvöldið 27. ágúst munum við ylja okkur saman í Arnardal yfir ljúffengum veitingum og magadansi. Magadansmærin Rosana mun sýna listir sínar en hún hefur unnið sem slík í fjölda ára og hampað ýmsum titlum eins og að vera best í sínu fagi hér á landi. Hún hefur farið um víðan völl með sýningar eins og til Dubai og Egyptalands og eins og allt alvöru fólk elskar hún Vestfirði og langar til að sýna á Vestfirskri grundu í þessari heimsókn sinni hingað, okkur í Arnardal finnst það mikill heiður og hlökkum mikið til.Framandi og freistandi veitingar verða framreiddar á hlaðborði og verður þar að finna rétti eins og Shawarma, Mjaddara, Kafta, Fattouch, Jawaneh,Batata bil Kizbara, Hommos, Falafel, Labne, Moutabal og Tabbouleh.
Matur og skemmtun kosta 3400 kr og biðjum við ykkur að panta miða í síðasta lagi miðvikudaginn 26. í síma 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is
Fjósið opnar dyr sínar fyrir gestum kl. 19 á fimmtudagskvöld, við hlökkum til að sjá ykkur!
