Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Að segja sögur - námskeið í sagnamennsku í Arnardal

10. september 2009 klukkan 14:13

Námskeið í sagnamennsku verður haldið í Arnardal dagana 25.-26.september. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Sagnamiðstöð íslands. Kennarar á námskeiðinu eru Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Námskeiðið hentar vel öllum þeim sem hafa atvinnu af því að segja frá og öllum sem áhuga hafa á sagnamennsku.

Hæfileikinn til að segja sögur, leynist í okkur öllum.  Á námskeiðinu virkjum við þennan hæfileika og fetum okkur áfram á sagnaslóðinni.  Við skoðum efniviðinn, þ.e. sögurnar sjálfar - það að velja sögu og endurskapa sögu.  Einnig söfnum við ýmsu í verkfærakistu sagnamannsins sem hann getur beitt til að glæða sögurnar sínar lífi. Fjallað verður um þær fjölmörgu leiðir þar sem nýta má sögur, t.d. í ferðaþjónustu, safnastarfsemi, í starfi með börnum og unglingum, með eldri borgurum og í allskyns menningarstarfsemi.  Ætlunin er að auðvelda þátttakendum að velja þann vettvang sem höfðar til þeirra.

Á námskeiðinu verður stuðst við sagnahandbók úr Evrópuverkefninu Storytelling Renaissance.

Kennt verður föstudagskvöld frá kl. 20-22 og laugardag frá kl. 10-17. Í framhaldinu er stefnt að því að stofna Félag vestfirskra sagnaþula. Á sunnudagskvöldinu verður síðan óformleg sagnavaka með þátttakendum á námskeiðinu og félögum í nýstofnuðu Félagi vestfirskra sagnaþula. Verð er 16.300 kr. og eru kaffiveitingar og hádegisverður á laugardeginum innifalið í verðinu.

Kennararnir Ingi Hans og Sigurborg hafa bæði fengist við sagnamennsku, kennt á námskeiðum og komið fram á sagnakvöldum hér heima og erlendis.

Skráningar fara fram hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456-5025 eða á www.frmst.is

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.