Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Heilsugæslan frumsýnd í Arnardal í október

17. september 2009 klukkan 12:08
Æfingar á nýjasta verki Kómedíuleikhússins Heilsugæslunni ganga vel en það verður frumsýnt í Arnardal 2. október. „Verkið fjallar um tvo lækna sem eru afar ólíkir. Annar er gamall í hettunni og vinur allra en hinn er harðari og sífellt að sækja ráðstefnur og afla sér meiri menntunar. Við fylgjumst með nokkrum sjúklingum koma til þeirra sem eru margir hverjir mjög skondnir og þetta er líka ádeila á þá áráttu lækna að gefa lyf við öllu þegar margt mætti leysa með því einfaldlega að lifa heilbrigðu lífi", segir Margrét Sverrisdóttir leikkona en auk hennar bregður Elfar Logi Hannesson sér í líki læknis og sjúklinga. Um er að ræða gamanleik eftir hinn víðkunna kvikmyndargerðarmann og lækni Lýð Árnason.

Frétt og mynd af www.bb.is Karakterar úr Heilsugæslunni

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.