Heilsugæslan - uppselt fyrstu sýningarhelgi - búið að bæta við sýningum
07. október 2009 klukkan 17:11
Heilsugæslan, hið stórgóða nýja leikrit eftir Lýð Árnason var frumsýnt hjá okkur hér í Arnardal um síðustu helgi. fullt var á sýningarnar bæði föstudags- og laugardagskvöld og ætlaði þakið að rifna af Fjósinu vegna tíðra hlátraskalla. Sýnt verður með sama sniði nú á föstudag og laugardag, þ.e. matur - leiksýning - tónleikar og eru það síðustu sýningarnar með þessu sniði. Uppselt er á laugardag en við eigum nokkra miða á föstudagskvöld, miðaverð 4900. Síðan erum við búin að bæta við fjórum aukasýningum sem hér segir:
Sunnudaginn 11. okt kl. 15
Föstudaginn 16. okt kl: 23:30 - Miðnætursýning
Sunnudaginn 18. okt kl. 15 og kl. 20:30
Miðaverð 1900 kr.
Sunnudaginn 11. okt kl. 15
Föstudaginn 16. okt kl: 23:30 - Miðnætursýning
Sunnudaginn 18. okt kl. 15 og kl. 20:30
Miðaverð 1900 kr.
