Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Austrænir vindar svífa yfir Skutulsfirði um komandi helgi

03. nóvember 2009 klukkan 14:42

Á föstudagskvöldið verður Bollywoodkvöld í Arnardal. Yndislegur indverskur matur verður á hlaðborði og Rosana Davudsdóttir sýnir Bollywood dansa. Húsið opnar kl. 19 og kostar 4200 kr. Skráningar á arnardalur@arnardalur.is og í síma 860-6062 


Um helgina gefst Vestfirskum konum svo kostur á að æfa sig í framandi danslistum er boðið verður upp á námskeið bæði í magadansi og Bollywood dansi.  

Kennari á námskeiðunum er Rosana Davudsdottir, íslandsmeistari atvinnumanna í magadansi, hún hefur dansað og kennt magadans í árafjöld, meðal annars hefur hún kennt í Kramhúsinu og starfað sem magadansmær í Dubai, Líbanon og fleiri stöðum. Námskeiðsgjald er 7500 krónur fyrir hvort námskeið en hafi einhverjar hug á að taka bæði námskeiðin kostar það 12.000 krónur.

Námskeiðin fara fram í Ljósinu þínu. Skráningar fara fram hjá Írisi Jóns í Bókahorninu, í síma 898-5553 og á bokahornid@snerpa.is


Magadans

Laugardag og sunnudag frá kl. 11-13

Styrktu hið kvenlega og finndu konuna í sjálfri þér. Byrjendanámskeið, þar sem konur geta lært þennan töfrandi dans. Dulúð og þokki - fyrir allar sem vilja styrkja konuna í sjálfri sér.

Bollywood

Laugardag og sunnudag frá kl. 14-16

Það er mikil gleði í Bollywood dönsunum og er þetta námskeið fyrir allar konur sem vilja kynnast gleðinni ,tónlistinni og hreyfingunni í Bollywood.  Kenndur verður dans við lagið Jay Ho úr Slumdog millionare.

 

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.