Bollywoodkvöld fellur niður, eitt og annað í burðarliðnum
06. nóvember 2009 klukkan 11:43
Vegna ónógrar þátttöku verðum við að blása af Bollywoodkvöld sem vera átti í Arnardal í kvöld. Vestfirskar konur eiga þó enn kost á því að upplifa austræna stemningu og hrista á skankana á dansnámskeiði um helgina (sjá eldri frétt).
Annað kvöld, laugardag, verður mikið um dýrðir í dalnum er haustfagnaður Strandamanna fer hér fram!
Svo um næstu helgi verða aukasýningar á hinni stórskemmtilegu Heilsugæslu, miðnætursýning á laugardag kl. 23:30 og kl. 20:30 á sunnudag. En á sunnudag verðum við líka með hið sívinsæla Dalaport sem hefur verið í örlítilli pása og kaffihlaðborð húsfreyjunnar. Pantanir á söluborðum í síma 860-6062.