Búðu til þinn eigin aðventukrans
23. nóvember 2009 klukkan 14:29
Viltu gera þinn eigin aðventukrans í ár? komdu í Arnardal á fimmtudagskvöldið og eigum saman huggulega stund við aðventukransagerð. Júlíana Ernisdóttir í Blómaturninum mun kenna réttu handtökin og sýna mismunandi útfærslur af krönsum. Innifalið í námskeiðsgjaldi er: kransaundirlag (hringur), greni og vír, kennsla, kaffi og smákökur.
Þið þurfið að koma með kerti og skraut. Ath. hægt er að koma við hjá Júlíönu í Blómaturninum og fá aðstoð við val á skreytingum.
Verð. 4500 - Við byrjum kl. 20 - Kósýheit par excellence!
Skráningar hjá Önnsku í síma 8606062 og á arnardalur@arnardalur.is