Páskar í vændum og brjálað stuð í dalnum!
Miðvikudagskvöld 21:00 Heilsugæslan í Arnardal
Kómedíuleikhúsið sýnir hápólitíska gamanleikinn Heilsugæsluna. Miðasala er hafin í síma: 860 6062, einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst arnardalur@arnardalur.is
Gamanleikurinn Heilsugæslan var frumsýndur í október á síðasta ári og hefur notið fádæma vinsælda enda er hér um að ræða efni sem kemur okkur öllum við. Leikurinn hefur verið sýndur yfir 30 sinnum um land allt með húsfylli á hverri sýningu. Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum? Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki. Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Sýningin er ein klukkustund. Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar. Heilsugæslan fyrir alla!
Skírdagur
19:00 Djammað í Dalnum
Muurikkaveisla og Djass í Fjósinu í Arnardal. Höfðingjarnir Villi Valli, Óli
Kristjáns og Magnús Reynir leika af sinni alkunnu snilld. Murrikkaveisla reidd
fram í hlöðunni af gestakokknum Sigþóri Sigurðssyni, nýr matseðill, humarsúpa í
forrétt og kaffi og konfekt. Borðapantanir í síma 860-6062 og á arnardalur@arnardalur.is. Verð 5700 kr
á mann. Sophus Magnússon verður með sætaferðir
frá Hamraborg kl. 19 og til baka í bæinn aftur í kringum miðnættið.
Föstudagurinn langi 21:00 og 23:30 Heilsugæslan í Arnardal
Kómedíuleikhúsið sýnir hápólitíska gamanleikinn Heilsugæsluna. Miðasala er hafin í síma: 860 6062, einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst arnardalur@arnardalur.is
Gamanleikurinn Heilsugæslan var frumsýndur í október á síðasta ári og hefur notið fádæma vinsælda enda er hér um að ræða efni sem kemur okkur öllum við. Leikurinn hefur verið sýndur yfir 30 sinnum um land allt með húsfylli á hverri sýningu. Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum? Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki. Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Sýningin er ein klukkustund. Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar. Heilsugæslan fyrir alla!
Laugardagur:
11:30-14:00 Hábítur á Heimabæ
Í Fjósinu í Arnardal verður boðið upp á gómsætan árdegisverð fyrir þá sem vilja vera vel nærðir fyrir Aldrei fór ég suður. Súpa og brauð, amerískar pönnukökur, egg, beikon, pylsur og ýmislegt annað góðgæti. Sophus Magnússon býður upp á rútuferðir úr bænum (frá Hamraborg og AFÉS location) kl. 11:30 og 12:30 og til baka kl. 13:00 og 14:00.
19:00 Djammað í Dalnum
Muurikkaveisla og Djass í Fjósinu í Arnardal. Höfðingjarnir Villi Valli, Óli
Kristjáns og Sammi Rakari leika af sinni alkunnu snilld. Murrikkaveisla reidd
fram í hlöðunni af gestakokknum Sigþóri Sigurðssyni, nýr matseðill, humarsúpa í
forrétt og kaffi og konfekt. Borðapantanir í síma 860-6062 og á arnardalur@arnardalur.is. Verð 5700 kr
á mann. Sophus Magnússon verður með sætaferðir
frá Hamraborg kl. 19 og til baka í bæinn aftur í kringum miðnættið.
Páskadagur:
14:00-17:00 Hnallþórur og hnossgæti í Fjósinu
Hnallþórur og hnossgæti í Fjósinu í Arnardal. Upplagt fyrir stórfjölskyldurnar sem koma saman um páskana að fá sér sunnudagsbíltúr í Arnardal eins og forðum daga.
