Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Af gnægtaborði strandamanna

15. október 2010 klukkan 11:07
Matarhátíð í Arnardal
Laugardag 23. október 2010

Veislan sem sló rækilega í gegn á síðasta ári 
Á hlaðborði eru yfir tuttugu tegundir matvæla, eins og:
Súrsaðir selshreifar, saltað selspik, siginn bútungur með mörfloti, plokkfiskur, ekta lúðurikklingur m/smjöri, kræklingur, svið, vélindu og sviðalappir, hrútspungar, blóðgrautur og ábrystir, svo eitthvað sé nefnt.
 
Undir borðum verður sýnd án hljóðs kvikmynd Finnboga Hermannssonar um síldarævintýrin á Djúpavík og Ingólfsfirði í tilefni af 70 ára afmæli Félags Árneshreppsbúa
Systurnar Auður og Sigurlaug Árnadætur syngja
Halldór Hermannsson segir frá flutningi foreldra sinna af Ströndum að Djúpi
Spurningakeppni með veglegum verðlaunum
Hljómsveitin Neistar leika fyrir dansi
Húsið opnar kl 19.00

Rútuferðir frá Bolungavík, Hamraborg og Holtahverfi og til baka að dansleik loknum, Sophus S:893-8355

Miðaverð aðeins 4900 á mann, matur, skemmtun og dansleikur
Miðapantair í símum: 8606062 og 8640319 

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.