Kómísk tvenna í Arnardal á Veturnóttum
Einleikjatvenna frá Komedíuleikhúsinu í Fjósinu í Arnardal, þar sem sýndir verða einleikirnir The poet comes home og Bjarni á Fönix. Fimtudagskvöld og föstudagskvöld kl. 21:00. Miðaverð 2500, miðasala á staðnum.

The poet comes home er 30 mínútna einleikur á ensku unnin upp úr Fóstbræðrasögu og fjallar um Þormóð Kolbrúnarkskáld, en hann hlaut einmitt nafngiftina er hann kom í Arnardal forðum og kvað fagran óð til heimasætunnar á bænum. Saga um bræðralag, hetjudáð, svik, kvennafar og galdra. Leikari er Elfar Logi Hannesson og Leikstjóri Sigurður Líndal.


Bjarni á Fönix er 40 mínútna einleikur um skipherrann
Bjarna á Fönix - sönn vestfirsk hetju- og þroskasaga. Í þessu leikverki
skiptast á ástir og átök úr íslenskum raunveruleika þar sem Bjarni glímir við
spurninguna „Drap ég mann eða drap ég ekki mann?“ Kraftmikil sýning sem lætur
engan ósnortinn. Leikari er Ársæll Níelsson og Leikstjóri Elfar Logi Hannesson
