Steindór Andersen með kveðskaparnámskeið í Arnardal í janúar
31. desember 2010 klukkan 10:00
Steindór Andersen hin kunni kvæðamaður verður með 3ja kvölda námskeið í rímnakveðskap í Arnardal dagana 18.,19.,og 20.janúar. Aðal viðfangsefnið verður kveðskapur sem á uppruna sinn að
miklu leyti á Vestfjörðum. Veitt verður tilsögn í bragfræði rímna ásamt því sem farið verður í kveðskaparæfingar. Verð er 13.900.- Hægt er að athuga með niðurgreiðslu hjá stéttarfélögum. Skráningar fara fram hjá Önnsku í síma 8606062 eða á arnardalur@arnardalur.is
