Þorrablót Strandamanna....og allra hinna í Arnardal 19. febrúar
17. janúar 2011 klukkan 12:13
Verið er að undirbúa þorrablót í Arnardal á síðasta degi þorra þann 19. febrúar. Boðið verður upp á þjóðlegan mat á hlaðborði og er yfirumsjón með honum í höndum Þorsteins Þráinssonar matreiðslumeistara. Sophus Magnússon og Úlfar Ágústson verða að sjálfsögðu aðal-karlarnir og verið er að sjóða saman skemmtidagskrá. Þetta verður allt auglýst betur innan tíðar - Við vildum bara láta ykkur vita, svo þið getið tekið frá daginn.
