Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Vestfirskur skáldskapur á 57 mínútum og bónussjóvið Vestfirsk tónlist á 27 mínútum

20. janúar 2011 klukkan 13:55

Kómedíuleikhúsið setur upp nýtt íslenskt og þrælkómískt leikverk er nefnist Vestfirskur skáldskapur á 57. mínútum. Einsog nafnið gefur til kynna er vestfirskur skáldskapur einsog hann leggur til umfjöllunnar og þar er af mörgu að taka. Rétt er að geta þess að þó um háalvarlegar bókmenntir sé að ræða þá er hér um ónvætan gamanleik að ræða.  

Vestfirðingar hafa löngum verið þekktir hagyrðingar og sögumenn. Frásagnarlistin er þeim í blóð borin og að henda fram stöku er þeim jafn eðlislægt og að draga andann. Þau eru ófá þjóðskáldin og stórkáldin úr röðum vestfirðinga í gegnum aldirnar og eiga þeir meðal annars þjóðsönginn sem og fyrstu skáldsögu Íslands. 


Það er því um auðugan garð að grisja þegar þeir félagar í Kómedíuleikhúsinu gera vestfirskum skáldskap skil og liggur því í augum uppi að 57 mínútur er auðvitað fullknappt. Þetta leika þeir samt eftir á sinn kómískan hátt, svo að úr verður bráðfjörug og skemmtileg sýning, sneisafull af sprenghlægilegum uppákomum með tilvísanir í okkar þekktustu skáld. 

Leikarar og leikgerð: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson
Tónlist: Guðmundur Hjaltason

Leikmynd/búningar/leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir

 

Til að toppa herlegheitin flytur Guðmundur Hjaltason dagskrána “Vestfirsk tónlist á 27 mínútum” þar sem óma munu lög allt frá Helga Björns til BG, Jóns Kr til Mugison. 

Verð: 2500 per pers. 

 
Súpuhlaðborð fyrir sýningar. Hafi hópar áhuga á að gera meira úr kvöldinu, eins og að bjóða vinnustaðnum út að borða eða drífa saumaklúbbinn út úr húsi, þá bjóða Steini kokkur og SKG veitingar upp á súpuþrennu með allavega jafnmörgum tegundum af brauði fyrir sýningar (einungis ef pantað er.) Verð: 1790 á mann.

Skrifa athugasemd

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.