Komdu í leikhús!
05. febrúar 2011 klukkan 04:53
Kómedíuleikhúsið frumsýnir föstudaginn 4. febrúar í Arnardal nýtt íslenskt og þrælkómískt leikverk er nefnist Vestfirskur skáldskapur á 57. mín og Vestfirsk tónlist á 27. mín. Einsog nafnið gefur til kynna er vestfirskur skáldskapur einsog hann leggur til umfjöllunnar og þar er af mörgu að taka. Rétt er að geta þess að þó um háalvarlegar bókmenntir sé að ræða þá er hér um ónvætan gamanleik að ræða. Miðasala er þegar hafin og er nú þegar uppselt á frumsýningu en laus sæti á 2 sýningu laugardaginn 5. febrúar kl.20. Næstu sýningar verða föstudaginn 11. og 12. febrúar einnig kl.20. Síðsta sýningarhelgi í Arnardal verður 17. og 18. febrúar. Miðasala á allar sýningar er hafin í síma 450 5565. Miðaverð: 2500 kr.
Vestfirðingar hafa löngum verið þekktir hagyrðingar og sögumenn. Frásagnarlistin er þeim í blóð borin og að henda fram stöku er þeim jafn eðlislægt og að draga andann. Þau eru ófá þjóðskáldin og stórkáldin úr röðum vestfirðinga í gegnum aldirnar og eiga þeir meðal annars þjóðsönginn sem og fyrstu skáldsögu Íslands.
Það er því um auðugan garð að grisja þegar þeir félagar í Kómedíuleikhúsinu gera vestfirskum skáldskap skil og liggur því í augum uppi að 57 mínútur er auðvitað fullknappt. Þetta leika þeir samt eftir á sinn kómískan hátt, svo að úr verður bráðfjörug og skemmtileg sýning, sneisafull af sprenghlægilegum uppákomum með tilvísanir í okkar þekktustu skáld.
Að skáldskapnum loknum verður farið í gegnum Vestfirska tónlist á 27. mín. Einsog í skáldskapnum á tónlistin að vestan sér einnig litríka sögu eða hver kannast ekki við BG og Ingibjörg, Facon, Ýr, Grafík, Mugison og þannig mætti lengi telja. Allir verða frjálsir í stuði og geta sungið með.
Leikarar og leikgerð: Ársæll Níelsson, Elfar Logi Hannesson
Tónlist: Guðmundur Hjaltason
Leikmynd/búningar/leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Hópar geta gert sér enn glaðari kvöldstund og pantað í súpuhlaðborð fyrir leiksýningu. Súpuþrenna og brauð á 1790 kr. Pantanir fyrir mat í síma 8606062.