Jólerí í Arnardal - kaffihlaðborð, lifandi tónlist, jólasveinar og dótabingó
Eigum góðar stundir á aðventunni. Kjörið færi fyrir fjölskylduna að fá sér sunnudagsrúnt í Arnardal líkt og forðum daga.
Opnum kl. 13 sunudaginn 6. desember 2009. Mini-Dalaport í Fjósinu (Hlaðan er frá vegna kulda) og kaffihlaðborð.
Kl. 14 koma jólasveinar í heimsókn. Svo verður lifandi tónlistarflutningur og kl. 16 verður lítið létt dótabingó fyrir yngri kynslóðina.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Arnardal
Búðu til þinn eigin aðventukrans
Þið þurfið að koma með kerti og skraut. Ath. hægt er að koma við hjá Júlíönu í Blómaturninum og fá aðstoð við val á skreytingum.
Verð. 4500 - Við byrjum kl. 20 - Kósýheit par excellence!
Skráningar hjá Önnsku í síma 8606062 og á arnardalur@arnardalur.is
Góð helgi í vændum í Arnardal - Heilsugæslan og Dalaport
9. sýning - laugardagskvöldið 14. nóvember kl. 20:30
10. sýning - sunnudagskvöldið 15. nóvember kl. 20:30

Á sunnudag verður vakið upp af litlum blundi hið sívinsæla Dalaport sem hefur fengið sér um 2.ja mánaða lúr. jólin eru á næsta leiti og kjörið að næla sér í smá aukapenge fyrir dótið úr geymslunni eða koma handverkinu sem svo gaman er að gera í verð. Svo fyrir hina sem ekki eru að selja - þá er að koma og gera kostakaup! Dalaportið er í Hlöðunni frá 13-16:30. Söluborð bókast í síma 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is
Eins og hefðin segir til um verður Kaffihlaðborð húsfreyjunnar í Fjósinu sama dag frá 14-16:30
Bollywoodkvöld fellur niður, eitt og annað í burðarliðnum
Annað kvöld, laugardag, verður mikið um dýrðir í dalnum er haustfagnaður Strandamanna fer hér fram!
Svo um næstu helgi verða aukasýningar á hinni stórskemmtilegu Heilsugæslu, miðnætursýning á laugardag kl. 23:30 og kl. 20:30 á sunnudag. En á sunnudag verðum við líka með hið sívinsæla Dalaport sem hefur verið í örlítilli pása og kaffihlaðborð húsfreyjunnar. Pantanir á söluborðum í síma 860-6062.
Veturnætur um helgina
Austrænir vindar svífa yfir Skutulsfirði um komandi helgi
Á föstudagskvöldið verður Bollywoodkvöld í Arnardal. Yndislegur indverskur matur verður á hlaðborði og Rosana Davudsdóttir sýnir Bollywood dansa. Húsið opnar kl. 19 og kostar 4200 kr. Skráningar á arnardalur@arnardalur.is og í síma 860-6062
Um helgina gefst Vestfirskum konum svo kostur á að æfa sig í framandi danslistum er boðið verður upp á námskeið bæði í magadansi og Bollywood dansi.
Kennari á námskeiðunum er Rosana Davudsdottir, íslandsmeistari atvinnumanna í magadansi, hún hefur dansað og kennt magadans í árafjöld, meðal annars hefur hún kennt í Kramhúsinu og starfað sem magadansmær í Dubai, Líbanon og fleiri stöðum. Námskeiðsgjald er 7500 krónur fyrir hvort námskeið en hafi einhverjar hug á að taka bæði námskeiðin kostar það 12.000 krónur.
Námskeiðin fara fram í Ljósinu þínu. Skráningar fara fram hjá Írisi Jóns í Bókahorninu, í síma 898-5553 og á bokahornid@snerpa.is
Magadans
Laugardag og sunnudag frá kl. 11-13
Styrktu hið kvenlega og finndu konuna í sjálfri þér. Byrjendanámskeið, þar sem konur geta lært þennan töfrandi dans. Dulúð og þokki - fyrir allar sem vilja styrkja konuna í sjálfri sér.
Bollywood
Laugardag og sunnudag frá kl. 14-16
Það er mikil gleði í Bollywood dönsunum og er þetta námskeið fyrir allar konur sem vilja kynnast gleðinni ,tónlistinni og hreyfingunni í Bollywood. Kenndur verður dans við lagið Jay Ho úr Slumdog millionare.
AF GNÆGTABORÐI STRANDAMANNS
Sófus Magnússon fór í matarkisturnar og verður boðið upp á veisluföngin á kvöldskemmtun í Arnardal
Á hlaðborði: m.a. Siginn fiskur m/mörfloti,selkjöt 2-3 teg og spik, hrefnukjöt, sviðalappir, reyktur rauðmagi, ekta plokkfiskur, hrossakjöt, vélindu, hörpuskel, kræklingur, ábrestir, lambakjöt og allskonar meðlæti
Þorsteinn Þráinsson matreiðslumeistari og Anna Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja í Arnardal sjá um eldamennskuna.
Karlakórinn Ernir syngur, spurningakeppnir, góð verðlaun, söngur, gamansögur o.fl.
Stórsveit Samma Rakara leikur fyrir dansi á milli klukkan 23-02
Veislustjóri Úlfar Ágústsson
Verð Kr: 4.900.-
Allir Strandamenn og vinir þeirra velkomnir
Panta þarf sæti fyrir fimmtudagskvöld 5/11.
Sófus sími 893-8355
Úlfar 864-0319
Netfang. ulfar@isafjordur.info.
Sama dag verður boðið upp á kynnisferð um þjónustustofnanir í Ísafjarðarbæ:
Vestrahúsið með Háskólasetri, Fræðsluniðstöð, Atvinnuþróunarfélagið, Teiknistofuna Eik ásamt mörgum öðrum. Edinborg menningarmiðstöð. Nýji grunnskólinn. Gamla sjúkrahúsið(safnahúsið) og e.t.v. fleiri staði.
Leiðsögumaður: Sigurður Pétursson sagnfræðingur(dóttursonur Hjartar Sturlaugssonar í Fagrahvammi). Hressing einhverstaðar á leiðinni.
Nauðsynlegt er að bóka sig í skoðunarferðina.
´ ÁTTHAGAFÉLAG STRANDAMANNA
Heilsugæslan - uppselt fyrstu sýningarhelgi - búið að bæta við sýningum
Sunnudaginn 11. okt kl. 15
Föstudaginn 16. okt kl: 23:30 - Miðnætursýning
Sunnudaginn 18. okt kl. 15 og kl. 20:30
Miðaverð 1900 kr.
Heilsugæslan í Arnardal - miðasala hefst í dag kl: 15:15!
Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki.
Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur.
Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar.
Heilsugæslan fyrir alla!
Matur - Leiksýning og menningarlegir tónleikar í eftirrétt
Frumsýning: Fös. 2. október kl.19.30. Megakukl spilar.
2. sýning: Lau. 3. október kl.19.30. Óvissu tónleikar.
3. sýning: Fös. 9. október kl.19.30. Óvissu tónleikar.
4. sýning: Lau. 10. október kl.19.30. Grjóthrun spilar
Í matinn er þetta helst: dýrindis-grænmetissúpa, úrval af brauði og með því á hlaðborði. Hægt er að panta eftirrétt sérstaklega.
Miðaverð fyrir mat, leiksýningu og tónleika aðeins: 4900 kr. Miðasölusími: 860 6062 einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið arnardalur@arnardalur.is

