Heilsugæslan frumsýnd í Arnardal í október
Frétt og mynd af www.bb.is
Að segja sögur - námskeið í sagnamennsku í Arnardal
Námskeið í sagnamennsku verður haldið í Arnardal dagana 25.-26.september. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Sagnamiðstöð íslands. Kennarar á námskeiðinu eru Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Námskeiðið hentar vel öllum þeim sem hafa atvinnu af því að segja frá og öllum sem áhuga hafa á sagnamennsku.
Hæfileikinn til að segja sögur, leynist í okkur öllum. Á námskeiðinu virkjum við þennan hæfileika og fetum okkur áfram á sagnaslóðinni. Við skoðum efniviðinn, þ.e. sögurnar sjálfar - það að velja sögu og endurskapa sögu. Einnig söfnum við ýmsu í verkfærakistu sagnamannsins sem hann getur beitt til að glæða sögurnar sínar lífi. Fjallað verður um þær fjölmörgu leiðir þar sem nýta má sögur, t.d. í ferðaþjónustu, safnastarfsemi, í starfi með börnum og unglingum, með eldri borgurum og í allskyns menningarstarfsemi. Ætlunin er að auðvelda þátttakendum að velja þann vettvang sem höfðar til þeirra.
Á námskeiðinu verður stuðst við sagnahandbók úr Evrópuverkefninu Storytelling Renaissance.
Kennt verður föstudagskvöld frá kl. 20-22 og laugardag frá kl. 10-17. Í framhaldinu er stefnt að því að stofna Félag vestfirskra sagnaþula. Á sunnudagskvöldinu verður síðan óformleg sagnavaka með þátttakendum á námskeiðinu og félögum í nýstofnuðu Félagi vestfirskra sagnaþula. Verð er 16.300 kr. og eru kaffiveitingar og hádegisverður á laugardeginum innifalið í verðinu.
Kennararnir Ingi Hans og Sigurborg hafa bæði fengist við sagnamennsku, kennt á námskeiðum og komið fram á sagnakvöldum hér heima og erlendis.
Skráningar fara fram hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456-5025 eða á www.frmst.is
1001 nótt í Arnardal
Fimmtudagskvöldið 27. ágúst munum við ylja okkur saman í Arnardal yfir ljúffengum veitingum og magadansi. Magadansmærin Rosana mun sýna listir sínar en hún hefur unnið sem slík í fjölda ára og hampað ýmsum titlum eins og að vera best í sínu fagi hér á landi. Hún hefur farið um víðan völl með sýningar eins og til Dubai og Egyptalands og eins og allt alvöru fólk elskar hún Vestfirði og langar til að sýna á Vestfirskri grundu í þessari heimsókn sinni hingað, okkur í Arnardal finnst það mikill heiður og hlökkum mikið til.Framandi og freistandi veitingar verða framreiddar á hlaðborði og verður þar að finna rétti eins og Shawarma, Mjaddara, Kafta, Fattouch, Jawaneh,Batata bil Kizbara, Hommos, Falafel, Labne, Moutabal og Tabbouleh.
Matur og skemmtun kosta 3400 kr og biðjum við ykkur að panta miða í síðasta lagi miðvikudaginn 26. í síma 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is
Fjósið opnar dyr sínar fyrir gestum kl. 19 á fimmtudagskvöld, við hlökkum til að sjá ykkur!
Dalaport, kaffihlaðborð og lifandi tónlist á sunnudag
Kaffihlaðborð húsfreyjunnar verður í Fjósinu sama dag en það hefst kl. 14, þar svigna borðin undan heimalögðum kræsingum. Systkinin Hjödda og Jói Jónsbörn sjá um lifandi tónlistarflutning.
Allir velkomnir - við hlökkum til að sjá ykkur í dalnum fagra!
Afar góð ferð í Arnardal í gærkvöldi
Ísafjarðarbær er sannarlega heppinn að eiga svona flinkt fólk!
Söngfuglarnir og Halldór
Veitingar í boðinu
Gestirnir byrjaðir að tínast inn
og fleiri
Hljóðfæraveggurinn og veisluborðið
Mikið af fólki og mikið fjör
Ég kalla þær ekki söngfuglana sætu upp á grín!
Mikið af fólki líka séð frá þessari hlið!
Góða ferð í Arnardal
Stelpurnar hafa sungið oft saman í gegnum tíðina, af ýmsum tilefnum, og ákváðu að skella saman skemmtilegu prógrammi og flauta til veislu. Efnisskráin inniheldur allt frá rútubílasöngvum til klassíkur, með ýmsum viðkomustöðum þar á milli eins og poppi og diskói. Öskubuskurnar halda hver í sína áttina á næstunni og þau Helga Margrét og Halldór á förum til höfuðstaðarins þar sem þau munu bæði hefja nám í Listaháskóla Íslands á haustmánuðum og eru tónleikarnir ein leið til að kveðja á báða bóga....í bili.
Það verður kreppuprís í gangi eða 1000 kall og innifalið í miðaverði eru léttar veitingar.
Allir velkomnir!
Dalaport og kaffihlaðborð 12. júlí
Hver á sér fegra föðurland í Arnardal
Tónlistarmennirnir ferðast um landið með innrás Kraums og Rás 2, eftirfarandi texta og ljósmynd var einmitt hnuplað af heimasíðu Kraums:
Árstíðir hafa gert garðinn frægan undanfarin misseri og er skemmst að minnast þess að lag þeirra, Sunday Morning var valið vinsælasta lag Rásar 2 tvær vikur í röð á dögunum. Sveitina skipa þeir Daníel Auðunsson, Ragnar Ólafsson og Gunnar Már Jakobsson gítarleikarar, Jón Elísson píanóleikari og Hallgrímur Jónas Jensson sellóleikari. Árstíðir þekkjast ekki síst á ómfögrum röddunum í anda gullaldarþjóðlagarokks 8. áratugarins. Þeirra fyrsta plata kom út nú í júní og hefur hlotið góðar viðtökur.
Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð sem forsprakki hljómsveitarinnar Hrauns, sem hefur sent frá sér tvær plötur undanfarin ár. Sveitin er ekki síst þekkt fyrir lögin Ástarsaga úr Fjöllunum, Komdu og Clementine en einnig hefur Svavar undanfarin ár gert víðreist sem trúbador og m.a. farið í tónleikaferðalög til Ástralíu, Þýskalands og víðar. Svavar Knútur gaf í vor út plötuna Kvöldvöku sem hefur hlotið frábæra dóma í fjölmiðlum en hún er einungis seld á tónleikum.
Helgi Valur er þekktur fyrir líflega framkomu sína og fjölbreytilegan stíl, en þessi óviðjafnanlegi spaugfugl hefur farið víða um land undanfarin ár. Helgi Valur gaf fyrir nokkrum árum út plötuna Demise of faith og vinnur nú að nýrri plötu sem heitir Electric Ladyboyland. Hann var valinn Trúbador Rásar 2 árið 2004 og hefur komið víða við síðan.
Gott í gogginn á laugardagskvöld í Arnardal!
Muurikkaveislurnar í Arnardal hafa notið mikillar hylli, en við höfum verið að taka á móti hópum í veislur frá því við opnuðum í júlí á síðasta ári. Nú gefst einstaklingum kostur á að bóka sig í veislu á laugardagskvöld þar sem boðið verður upp á lambakjöt, kjúklingaspjót og steinbít ásamt dýrindis meðlæti. Verð á mann er 2800 kr. Bókanir þurfa að berast húsfreyjunni fyrir laugardag í síma 860-6062.
Verið velkomin
Meira af sólstöðugleðinni
Eins og áður hefur komið fram verður dansað inn í dagbjarta nóttina í Arnardal á laugardagskvöld. Arnardalur er þeim töfrum gæddur að hér skín sólin nánast viðstöðulaust allan sólarhringinn á þessum árstíma og það er sannarlega ærin ástæða til að gleðjast saman yfir þessum langa sólargangi.
Kraftlyftingar-menn, Yxnu-menn og Sökudólgarnir eru kominir í rífandi partýstuð og lofa fjöri fyrir allan peninginn, enda varla annað hægt hjá svona þungavigtarstuðpinnum!
Hvernig fer þetta svo fram?
K. 19 munum við opna Fjósið og þá geta allir keypt sér ljúffenga sumarsúpu húsfreyjunnar, það veður tónlist og þægilegheit þar til við skundum út að brennu kl. 22 þar munu hljómsveitirnar í sameiningu slá á létta strengi og varðeldsstemningin eina sanna íslenska eins og við þekkjum hana best vera við völd, á miðnætti og eigi síðar hefst ballið í Hlöðunni og dönsum við saman til kl. 03:00.
Það er 18 ára aldurstakmark á ballið og athugið að ekki verður hleypt inn á svæðið eftir miðnætti öðrum en þeim sem ætla á ball.
Boðið verður upp á sætaferðir frá plani Stjórnsýsluhússins á Ísafirði kl. 21:30 og 00:00 og svo verður aftur farið í bæinn eftir ball.
Á ballið og skemmtunina kostar 2000 kall. Súpa kostar 1100 kall.
Það er hægt að tjalda í Arnardal viljir þú gera úr sólstöðugleðinni alvöru útihátíð!
