Sólstöðuball í Arnardal
Dalaport og kaffihlaðborð 14. júní
Eftir allar vorhreingerningarnar og nýjan líffstíl sem felur meðal annars í sér endurfæðingu handverksins blásum við í lúðra næsta Dalaports. Það mun fara fram í Arnardal sunnudaginn 14. júní n.k. frá kl. 13-16:30 og eins og háttur okkar hefur verið þá verður hið rómaða kaffihlaðborð húsfreyjunnar sama dag frá 14-16:30.
Þeir sem vilja bóka pláss á Dalaportinu hafi samband við Önnsku í síma: 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is
Júrópartý í dalnum
Veislan fer þannig fram að við opnum Fjósið gestum klukkan 18:00 og við verðum með grill á staðnum sem hver og einn kemur með sér á, s.s. alvöru júró-grillpartý í góðra vina hópi. Skiljið samt drykkina eftir heima því við verðum með opinn bar. við horfum svo öll saman á Íslendingana slá í gegn og skemmtum okkur saman - Sjáumst!
Dalaport 17.maí
Kaffihlaðborð húsfreyjunnar verður í Fjósinu frá 14-16:30.
Verið öll hjartanlega velkomin í vorið í dalnum fagra.
Glæsilegir hátíðir að baki
Takk takk allir saman sem litu við hjá okkur á Skíðavikunni. Húsfyllir var hjá okkur á Djassinum og einhverjir þurftu frá að hverfa er kökuhlaðborð og kvartett mæðgnanna var í hámarki upp úr kl. 15 á páskadag, hinir sömu hefðu þó getað snúið til baka klukkustund síðar og fengið nóg að bíta og brenna, sem og tónlistaratriðið vinsæla. Hábíturinn heppnaðist ljómandi vel og munum við klárlega endurtaka þann leik, teljum okkur búin að finna bestu rokkmáltíðina sem enginn ma vera án um komandi rokkhátíðir.
Við erum alsæl með hvernig tókst til á fyrstu starfspáskum okkar hér í dalnum. Við að sjálfsögðu eigum eftir að vera með einhver skemmtilegheit um ókomnar Skíðavikur.
Kaffihlaðborð og kvartett mæðgnanna á páskadag
Húsfreyjan sér svo um að fylla magana á kaffihlaðborðinu sem er rómað fyrir hnossgætið sem þar er að finna. Opið verður frá kl. 14-17. Mæðgurnar myndarlegu syngja prógram sitt bæði kl. 15 og kl. 16. Allt á kreppuprís eins og vanalega, en hlaðborðið kostar 1300 kr. börn 6-12 ára borga 1/2 gjald og frítt er fyrir yngri börn.
Verið hjartanlega velkomin í dalinn fagra
Hábítur á Heimabæ
Þar sem Snæfellska genið í mér virðist hinu Vestfirska yfirsterkara þá verður viðburðurinn að fá að heita Hábítur Á Heimabæ, en ekki Í, allt fyrir betri hljóm og þjónustu við hégómann.
Allavega þá er hábíturinn sannarlega að vinda upp á sig og verðium við með dásamlega söngfugla sem syngja veitingarnar niður hjá gestunum. Eins og áður hefur komið fram mun ofurkrúttið Mysterious Marta syngja og leika, en einnig höfum við yndislegu Elmu Sturludóttur og Elínu Sveinsdóttur sem eru um þessar mundir að syngja í sýningunni "Við heimtun aukavinnu" við góðar undirtektir. Ef þið hafið ekki séð þá frábæru sýningu þá hvet ég ykkur til að gera það nú á Skíðaviku - þið verðið ekki svikin um skemmtun það kvöldið, svo mikið er víst! Þeir sem hafa ekki heyrt Hjördísi Þráinsdóttur syngja þurfa absalút að gera sér ferð annað hvort í Arnardalinn eða á aukavinnuna, því þar er alveg hreint frábær söngkona á ferð. En Hjördís mun einmitt syngja hjá okkur við þetta tækifæri og henni til fulltingis er enginn annar en sjálfur Guðmundur Hjaltason sem hefur gert garðinn frægann með hjómsveitinni Gabríel og ekki síður sem vertinn hressi á kaffihúsinu Langa Manga sem var starfrækt um árabil á Ísafirði. Svo er aldrei að vita nema einhverjir hressir gestir stökkvi til og syngi og leiki.
Það verða ýmsar kræsingar og stílað inn á að allur skali þeirra sem koma saman þessa dagana á Ísafirði geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem þú ert að koma af skíðum....eða djamminu. Hér ma sjá það helsta sem finna á hábítnum:
Heitt.
Hrærð egg
Bacon
Pylsur
Amerískar pönnukökur
Sælkerasúpa
Steiktir kartöfluteningar með lauk
--------------
Kalt.
Úrval af brauði
Litlar pizzur
Grænmetisbökur
Bollur í súrsætri sósu
Grænmetisálegg
Kjötálegg
Reyktur lax
Pestó 2 teg.
Hummus
ostar
sultur
Ferskir ávextir
Verð á hábítinn er kreppuvænt eða 1700 kr. matur/skemmtun/sætaferð. Börn 6-12 ára borga hálft gjald og frítt er fyrir börn undir 6 ára aldri.
Sætaferðir verða frá Hamraborg kl. 11-12-13-14
Skíðavika að bresta á
Það styttist óðum í Skíðavikuna og rokkið og heimafólk í óða önn að gera og græja áður en gestirnir taka að streyma í bæinn. Það er að sjálfsögðu þannig líka farið með okkur arndælingana. Það er um það bil að seljast upp á djassinn og hlökkum við mikið til að fá þessa heiðursmenn til að spila hjá okkur. Skiðavikugestir horfinna ára muna margir eftir djasskvöldum með Villa Valla, Óla Kristjáns og Magnúsi Reyni og eru vafalítið margir gesta okkar úr þeim hópi. Okkur fannst ekkert eins við hæfi á þessari rómuðu bæjarhátíð eins og að vekja upp þennan góða dagskrárlið.
Sunnudagur til sælu í Arnardal
Á morgun verður Dalaport og kaffihlaðborð í Arnardal. Þar má að venju finna ýmislegt á boðstólnum í hlöðunni og gómsætar kræsingar í fjósinu. Opið frá 13-16:30.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Páskadagskráin að taka á sig mynd
Skírdagur
19:00 Djassað í Dalnum
Muurikkaveisla og Djass í Fjósinu í Arnardal. Höfðingjarnir Villi Valli, Óli Kristjáns og Magnús Reynir leika af sinni alkunnu snilld. Murrikkaveisla reidd fram í hlöðunni af gestakokknum Sigþóri Sigurðssyni. Borðapantanir í síma 860-6062 og á arnardalur@arnardalur.is. Verð 3900 kr á mann. Sætaferðir frá Hamraborg kl. 19 og til baka í bæinn aftur í kringum miðnættið.
Laugardagur:
11:00-15:00 Hábítur á Heimabæ
Í Fjósinu í Arnardal verður boðið upp á gómsætan árdegisverð fyrir þá sem vilja vera vel nærðir fyrir Aldrei fór ég suður. Súpa og brauð, amerískar pönnukökur, egg, beikon, pylsur og ýmislegt annað góðgæti. Söngkonan og sjarmatröllið Mysterious Marta syngur fyrir gesti kl. 12:30. Sætaferðir frá Hamraborg kl. 11, 12, 13 og 14.
Páskadagur:
14:00-17:00 Kaffihlaðborð og kvartett mæðgnanna í Arnardal
Hnallþórur og hnossgæti í Fjósinu í Arnardal. Söngfuglarnir Margrét Geirs og dætur hennar þrjár Helga Margrét, Anna og Agnes syngja ljúflingslög kl. 15 og aftur kl. 16. Upplagt fyrir stórfjölskyldurnar sem koma saman um páskana að fá sér sunnudagsbíltúr í Arnardal eins og forðum daga.
