Klukkan

Könnun

Ert þú af Arnardalsætt?

Takk fyrir síðast og næsta Dalaport í bígerð

17. mars 2009 klukkan 09:55
Þeir léku sér hressilega veðurguðirnir á síðasta Dalaporti og fengum við sýnishorn af flestu sem þeir hafa upp á að bjóða. Það skall á með kafaldsbyl og roki en létti svo til undir lokin og Dalurinn skartaði sýnu fegursta vetrarríki. Við höfum sett inn myndir í myndaalbúmið hér á síðunni frá herlegheitunum.
Næsta Dalaport er svo á dagskrá sunnudaginn 5. apríl. Bókið borð hjá húsfreyjunni í 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is

Ernir í ljóma

Næsta Dalaport

03. mars 2009 klukkan 00:10
verður sunnudaginn 15. mars. Þið getið bókað borð hjá húsfreyjunni í Arnardal í síma 860-6062 eða á arnardalur@arnardalur.is
Dalaportið nýtur mikilla vinsælda og höfum við tekið á móti ófáum gestum þau skipti sem það hefur verið haldið og almenn kæti hefur ríkt hjá þeim sem tekið hafa þátt...við hvorn endann sem þeir eru.

Portið er hið kreppuvænsta því ekki kostar krónu að fá borð! Tilvalið að taka skurk í geymslunni og gera aur úr dótinu eða koma með heimagerðan varning sem nýtur sífelldra vinsælda og er móðins um þessar mundir þegar að landinn einbeitir sér að því að kaupa varning úr eigin héraði.

Bókið tímanlega!

Verið velkomin í dalinn í dag!

08. febrúar 2009 klukkan 10:04

Dalaportið verður í Hlöðunni í dag frá kl. 13-16:30 og kökuhlaðborð húsfreyjunnar frá 14-16. Endilega kíkið við! Dagurinn í dalnum er undurfagur og kjörinn til að fá sér rúnt með fjölskyldunni, gæða sér á gómsætu heimabakkelsi og gera góð kaup í Hlöðunni.

Verð á kökuhlaðborði er 1300 fyrir fullorðna, en hálft gjald er greitt fyrir börn 6-12 ára og frítt fyrir yngri en 6 ára.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Gleðilegt nýtt ár

27. janúar 2009 klukkan 14:03

Nýju ári fylgja oft fögur fyrirheit og í tilfelli húsfrúarinnar í Arnardal mun eitt þeirra vera að halda heiminum upplýstum um gang mála í dalnum gegnum þessa ágætu heimsíðu. En eins og glöggir lesendur geta séð var það verkfæri klárlega vannýtt á síðasta ári. Það þýðir þó ekki að við hefðum ekki í nægu að snúast. Mikið var um veisluhöld í Fjósinu sem var nýtt til ýmissa uppákoma eins og starfsmannafagnaða, afmæla, tónleika og svo auðvitað fyrir Dalaportið og kökuhlaðborð sem óhætt er að segja að hafi slegið í gegn.

Næsta Dalaport er á döfunni sunnudaginn 8. febrúar og hvet ég alla sem hafa varning sem þeir vilja koma á framfæri að bóka sér bás annað hvort á arnardalur@arnardalur.is eða í síma 860-6062. Sama á við ef þið viljið bóka veislur.

Hlakka til að hitta ykkur á þessu spennandi ári nýrra og öðruvísi tækifæra.

Annska

Kökuhlaðborð á sunnudag

31. júlí 2008 klukkan 18:33

Um helgina, nánar tiltekið á sunnudegi verslunarmannahelgar verður kökuhlaðborð í Fjósinu í Arnardal. Bjóðum við gesti hjartanlega velkomna að njóta með okkur í sveitinni fögru.

SJÁUMST!

Helgin í Arnardal

24. júlí 2008 klukkan 12:57
Á morgun föstudag verður HLÖÐU-FIESTA
Við opnum klukkan 18:00 og hægt verður að fá tortillur með meðlæti að eigin vali eitthvað frameftir kvöldi. Einnig verður SPILAKVÖLD þar sem hægt verður að grípa í hin ýmsu spil, við eigum dágott safn. Verð á mat er 1600 krónur, en það kostar auðvitað ekkert að kíkja við.
Á laugardag frá klukkan 14:00-16:30 verður KÖKUHLAÐBORÐ Þá er kjörið að rúnta með fjölskylduna í dalinn fagra og gæða sér á ljúffengum heimabakstri.

VERIÐ VELKOMIN

KÖKUHLAÐBORÐ OG HLÖÐU-FIESTA!

23. júlí 2008 klukkan 01:33
Við ætlum að endurtaka leikinn næstu tvær helgar og vera með kökuhlaðborð í Fjósinu. Það verður n.k. laugardag 26.júlí og svo sunnudaginn 3.ágúst þ.e. um verslunarmannahelgi. Hlaðborðin hefjast klukkan 14 og standa til 16:30. Það verður mikið gott að snæða eins og dísu-draumar, heitir brauðréttir, súkkulaðikökur, jólakökur, skálatertur, brauðtertur, eplakökur og fleira og fleira.

Föstudagskvöldið 25. júlí ætlum við hinsvegar að vera með kvöldopnun í Fjósinu og bjóða upp á allskyns spil eins og Trivial Pursuit, Party og co. Sequence, Monopoly, scrabble og kínaskák. Við erum með frábær hringborð sem gaman er að spila við. Við ætlum að opna klukkan 18 og vera með Mexico-veislu í Hlöðunni. Þá geta gestir okkar valið sér inn í sínar eigin tortilla kökur. Vinsamlegast bókið fyrir hópa fyrir kl. 14 á föstudag í síma 860-6062.

Sjáumst í Dalnum

Mikið vel heppnað Dalaport

21. júlí 2008 klukkan 17:41
Dalaportið og kökuhlaðborðið í Arnardal á laugardaginn trekkti til sín mikið af fólki sem naut blíðunnar, bakkelsins og stemmningarinnar, við teljum að minnsta kosti 100 manns hafi heimsótt okkur í sveitina þennan dag. Við erum alsæl með hvernig til tókst og stefnum að því að endurtaka leikinn áður en of langt um líður. Einnig eru uppi hugmyndir um jólamarkað sem rímar vel við jólabörnin í dalnum. Hér má sjá nokkrar myndir frá stuðinu á laugardag.

kökurnar og hljóðfæraveggurinn

Húsbóndinn stoltur

glaðir gestir

Dalaportið

kökurnar runnu ljúft

Dalaportið og kökuhlaðborð á laugardaginn

15. júlí 2008 klukkan 22:43
Laugardaginn 19.júlí ætlum við að vera með DALAPORTIÐ í Hlöðunni í Arnardal. Nafnið er tilvísun í Kolaportið og verður mikið og margt að sjá og fá. Þetta verður ein alsherjar bílskúrssala og hvet ég alla sem þurfa að bæta við sig einhverju í búið eða á sig fataplöggum að kíkja við. Vel hefur gengið að koma út borðum til áhugasamra varningssala en það eru enn laus 2-3 stæði sem hægt er að frátaka í síma 860-6062. Dalaportið stendur yfir frá klukkan 13-17.

Sama dag frá 14-16:30 verður KÖKUHLAÐBORÐ í Fjósinu en þar verður hægt að fá sér ýmislegt gúmmilaði eins og brauðtertu, dísudraum, brownies, pönnsur, súkkulaðiköku, flatkökur, marenstertu,kleinur,eplaköku og skálartertu. Verð per mann er 1200.- Börn 6-12 ára borga hálft gjald og frítt fyrir yngri.

ALLIR VELKOMNIR

Komin af stað í dalnum

13. júlí 2008 klukkan 10:37

Þá er allt komið af stað í Arnardal. Hér hefur verið afar fámennt en góðmennt ættarmót Arnardalsættar um helgina. Við höfum ákveðið að fella niður messuna og gönguferðina sem átti að vera í dag. Bæði hefur nú ekki verið mikið um gesti og einnig er búið að vera rigning og blautt, sem gerir það kannski minna aðlaðndi að spóka sig í yndislegri náttúrunni. Um komandi helgi er verið að skoða að vera með Dala-port í Hlöðunni og Kökuhlaðborð í Fjósinu - fylgist með!

Senda okkur póst

arnardalur@arnardalur.is

Ferðaþjónustan Arnardal

  • Heimilisfang: Heimabær, Arnardal, Skutulsfirði
  • Annað: Bókanir og frekari upplýsingar í sima 860-6062. erum í tíu mínútna fjarlægð frá Ísafirði.