Dagskrá ćttarmóts Arnardalsćttar 2008
Föstudagur 11.júlí
19:00 Súpukvöld
Fiskisúpa og brauð í fjósinu
21:00 Kvöldvaka
Vökustjóri Úlfar Ágústsson. Harmonikkusjénið Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir spilar fyrir gesti.
Laugardagur 12.júlí
10:00 Gönguferð á Arnarnes með Úlfari Ágússyni framkvæmdafrömuði og ferðaþjónustubónda í Arnardal. Mæting við fjósið í Heimabæ.
11:00 Gengið á Erni með Oddi Jónssyni mælingamanni og fjallagarpi.
Fyrir þá allra huguðustu! Mæting við fjósið á Heimabæ.
13:00 Gönguferð með Eyvindi P. Eiríkssyni Vestfjarðagoða og húseiganda í Arnardal. Mæting við fjósið á Heimabæ.
15:00 Ratleikur
Skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna. Mæting við fjósið.
16:30 Allir í sund
Hópferð á eigin bílum í sundlaugina í Bolungavík.
20:00 Muurikka-grillveisla í Fjósinu í Arnardal
Húsfreyjan í Arnardal töfrar fram dýrindis veislu á Muurikka pönnum.
21:30 Kvöldvaka
Veislustjóri Halldór Hermannsson. Sverrir Hermannsson segir sögur af Arnardalsætt. Karaókí undir stjórn Mugga hafnastjóra. Dansað með Evu Friðþjófsdóttur danskennara. Benni Sig hinn eiturhressi spilar og syngur.
Sunnudagur 13.júlí
11:00 Helgistund í fjöruborðinu
Séra Magnús Erlingsson messar.
11:30 Gönguferð í Arnardalsfjöru með Sigurði Péturssyni sagnfræðingi. Farið eftir helgistund úr fjörunni.
13:00 Málþing í fjósinu
Skrafað og skeggrætt um Arnardalsætt. Mótsslit.
Ćttarmót Arnardalsćttar
Ættarmót Arnardalsættar - dagana 11.-13.júlí
Arnardalsætt er með stærri ættum landsins og erum við hér á Heimabæ voða stolt af því að búa á upprunaslóðum þessarar göfugu ættar.
Niðjum ættföðurins Bárðar Illugasonar er því gefin kostur á því að koma í Arnardal og skemmta sér saman um næstu helgi. Hægt er að tjalda í dalnum, en getur fólk komið og verið með okkur eftir hentugleika og áhuga hvers og eins.
Dagskráin kemur inn á mánudaginn en hægt er að nefna að kvöldskemmtanir verða bæði föstudag og laugardag. Hægt verður að fara í gönguferðir með leiðsögn, taka þátt í ratleik og sitja messu í fjöruborðinu.
Líđur ađ opnun
Ættarmót Arnardalsættar verður hér dagana 11.-13.júlí og því óhætt að segja að það verði byrjað með pompi og prakt. Dagskráin kemur hér inn á næstu dögum - fylgist með.
Velkomin á síđuna okkar
Velkomin í Arnardal
