Að rekstrinum í Arnardal standa hjónakornin á Heimabæ Anna Sigríður Ólafsdóttir og Úlfur Þór Úlfarsson ásamt Úlfari Ágústssyni og Jósefínu Guðrúnu Gísladóttur (foreldrum Úlfs).
Annska og Úlfur fluttu í sveitina haustið 2006 og elska lífið í dalnum fagra. Fjarlægðin við Ísafjörð er svo fullkomin, Arnardalur alvöru sveit, með höfuðstað Vestfjarða í 10 mínútna akstursfjarlægð en til gamans má geta að fjarlægðin er u.þ.b. 40 mín. á hjóli og 2ja klukkustunda labbitúr. Langi sólargangurinn í Arnardal á sumrin eykur lífsgæðin frá því að búa á eyrinni til muna, dagurinn virðist óendanlega langur (á jákvæðan hátt) og tækifærin óþrjótandi.
Húsfreyjan Annska hefur komið víða við á starfsferlinum og nemur nú ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. Úlfur hefur dágóða reynslu af því að standa vaktina í þjónustuhlutverkinu því hann hefur unnið í versluninni Hamraborg á Ísafirði frá þeim tíma er það varðaði ekki lög að börn stæðu langar sjoppuvaktir með skólanum. Hann á nú Hamraborg með Gísla bróður sínum.
Úlfar og Ína komu Hamraborg á koppinn fyrir rúmum fjörtíu árum siðan og hafa þau verið vakin og sofin yfir rekstrinum þar til synirnir tóku við fyrir skemmstu. Ína eins og hún er iðulega kölluð er húsmæðraskólagengin og ber hún þeim skólastofnunum fagurt vitni. Úlfar hefur vasast í mörgu; skrifað fyrir moggann, stundað sjómennsku og stjórnað hinum ýmsu hátíðum svo eitthvað sé nefnt.
Okkur hefur dottið ýmislegt í hug varðandi reksturinn í dalnum og þar sem allt hér er nýtt og ferskt og framandi erum við að leyfa okkur að vera eins og litlu börnin sem eru að uppgötva heiminn og prófa okkur áfram með það sem við viljum hafa í veröldinni okkar - og höfum gesti okkar með í ákvarðanatökunni.
Við leggjum okkur öll fram við að taka vel á móti ykkur í Arnardal - sjáumst!
